Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 583, 130. löggjafarþing 142. mál: mannréttindasáttmáli Evrópu (13. samningsviðauki).
Lög nr. 128 16. desember 2003.
Þingskjal 583, 130. löggjafarþing 142. mál: mannréttindasáttmáli Evrópu (13. samningsviðauki).
Lög nr. 128 16. desember 2003.
Lög um breyting á lögum um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62 19. maí 1994 (13. samningsviðauki).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Samningsviðauka nr. 13 frá 3. maí 2002 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, varðandi afnám dauðarefsinga í öllum tilvikum.
- Í stað orðanna „samningsviðaukar nr. 1, 4, 6 og 7“ í 2. mgr. kemur: samningsviðaukar nr. 1, 4, 6, 7 og 13.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 5. desember 2003.